Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 6

Himnarnir segja frá dýrð Guðs

Himnarnir segja frá dýrð Guðs

(Sálmur 19)

  1. 1. Dýrð Jehóva allt himinhvolfið heiðrar,

    um hagleik hans og snilld

    það fagurt vitni ber.

    Hver dagur stórmerkin stafar svo skýrt,

    hin stirnda nótt, hún boðar hljótt

    hvert eðli Drottins er.

  2. 2. Lög Jehóva án lýta, auðga lífið,

    þau ungum jafnt sem öldnum

    létta æviskeið.

    Hver regla innblásin reynast mun góð,

    hvert ráð er satt, fær okkur glatt

    og greiðir rétta leið.

  3. 3. Að óttast Guð er heilnæmt okkar hugsun

    og háleit boðin hans,

    þau veita sannan frið.

    Hans leiðsögn verndar best líf sérhvers manns.

    Hann sýnir vægð, hans náð skal frægð

    er nafn hans kynnum við.