Hoppa beint í efnið

Hvað er Guðsríki?

Hvað er Guðsríki?

Svar Biblíunnar

 Guðsríki er raunveruleg stjórn sem Jehóva Guð hefur stofnsett. Guðsríki er líka kallað himnaríki í Biblíunni af því það ríkir frá himni. (Markús 1:14, 15; Matteus 4:17) Það á margt sameiginlegt með ríkisstjórnum manna en er þeim samt æðra að öllu leyti.

  •   Stjórnendur. Guð hefur skipað Jesú Krist konung Guðsríkis og veitt honum meira vald en nokkur mannlegur konungur getur nokkurn tíma haft. (Matteus 28:18) Jesús beitir valdi sínu aðeins til góðs og hefur nú þegar sýnt fram á að hann er áreiðanlegur og umhyggjusamur stjórnandi. (Matteus 4:23; Markús 1:40, 41; 6:31-34; Lúkas 7:11-17) Undir leiðsögn Guðs hefur Jesús valið einstaklinga af öllum þjóðum til að ríkja sem konungar með sér á himnum. – Opinberunarbókin 5:9, 10.

  •   Varanleiki. Guðsríki mun ,aldrei hrynja‘ ólíkt ríkisstjórnum manna sem koma og fara. – Daníel 2:44.

  •   Þegnar. Allir sem fara eftir boðum Guðs geta orðið þegnar Guðsríkis óháð uppruna eða fæðingarstað. – Postulasagan 10:34, 35.

  •   Lögin. Lög (eða boðorð) Guðsríkis banna ekki einungis ranga hegðun heldur styrkja siðferðisvitund þegnanna. Biblían segir til dæmis: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. Annað er hliðstætt þessu: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ (Matteus 22:37-39) Þegnar Guðsríkis gera alltaf það sem er öðrum fyrir bestu vegna þess að þeir elska Guð og náungann.

  •   Menntun. Í Guðsríki eru ekki aðeins gerðar háleitar kröfur til þegnanna heldur er þeim kennt að uppfylla þessar kröfur. – Jesaja 48:17, 18.

  •   Verkefni. Stjórnendur Guðsríkis auðgast ekki á kostnað þegnanna. Þess í stað vinna þeir að því að framkvæma vilja Guðs og uppfylla fyrirheit hans um að allir sem elska Guð lifi að eilífu í paradís á jörð. – Jesaja 35:1, 5, 6; Matteus 6:10; Opinberunarbókin 21:1-4.