Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Guð lofar fullkominni geðheilsu

Guð lofar fullkominni geðheilsu

Í Biblíunni gefur Guð okkur leiðsögn og uppörvun til að takast á við geðraskanir.

En Guð lætur ekki þar við sitja. Hann lofar að afmá endanlega það sem veldur geðrænum kvillum.

Þegar Guð efnir þetta loforð verða erfiðar tilfinningar, geðraskanir og sárar minningar úr sögunni. Þeirra verður ‚ekki minnst framar og þær munu ekki íþyngja hjartanu‘. – Jesaja 65:17.

Vottar Jehóva eru fúsir til að hjálpa þér að komast að því hvenær og hvernig Guð efnir þetta uppörvandi loforð.